Fallegustu og flottustu bræður í heimi!!
Ísak Hrafn kom í heiminn með keisaraskurði laugardaginn 7. apríl 2007 kl 12:30, 3 dögum fyrir settan fæðingardag, og var sko rosalega stór og flottur strákur. Heilar 17 merkur (4290 gr) og 56 cm, með höfuðmál 38 cm.
Hann fæddist með brúnt hár og dökk augu, sem eru orðin fallega himinblá, og stundum ljósgrá núna. Og hárið er orðið alveg ljóst.
Ljósmóðirin sem tók á móti honum heitir Lára Dóra og hún var sko engin smá perla allan tíman. Eins og allar þarna á SHA.
Ísak Hrafn varð fljótt orðin ansi líkur pabba sínum, þó að mamman eigi nú eitthvað líka, og hann er að sjálfsögðu fallegastur og flottastur í heimi. ;)
Ísak er rosalega skír og duglegur strákur, en með mjög lítið hjarta og finnst fátt betra en að leika sér í rólegheitunum og láta klóra sér á bakinu hehe.
Hann er á leikskólanum Vallarseli og finnst það rosa gaman. 'isak er byrjaður að æfa fótbolta og það er hápunktur vikunnar hjá honum :)
Adrían Kári kom í heiminn 21. september 2009 kl 09:13, viku fyrir settan fæðingardag, með keisaraskurði alveg eins og stóri bróðir. Hann var tæpar 17 merkur (4215 gr) og 54 cm, með höfuðmálið 37,5 cm. Allur örlítið nettari en Ísak.
Hann fæddist með dökkbrúnt hár og augun voru strax brún.
Lára Dóra tók líka á móti honum.
Hann er frekar líkur mömmu, en pabbi á líka helling. Og hann er auðvitað alveg jafn fallegur og yndislegur og stóri bróðir sinn.
Adrían Kári er mjög brosmildur, en hann er sko algjör grallari sem gerir eiginlega bara alltaf það sem hann vill;)
Uppáhaldið hans Adríans er Ísak Hrafn stóri bróðir. Adrían er rosa mikill boltastrákur og er sparkandi í bolta allan daginn ;)

Mamma okkar heitir Katrín Inga Gísladóttir (86) og pabbi okkar Arnar Már Guðjónsson (87).
Þau eru svakalega stollt af fallegu prinsunum sínum...
Við búum á Akranesi með mömmu. Pabbi á líka heima á Akranesi og við förum oft til hans. Við eigum líka kisurnar Díönu og Ronju, og hundinn Sögu :)
Bannað að gleyma gestó!!!!!
**************************************************
*Mamma er konan sem heldur í höndina á manni fyrstu árin*
*En hjartað alla ævi*
**************************************************

